Biotech News

Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna (FDA) tekur til afgreiðslu umsókn Alvotech um markaðsleyfi fyrir fyrirhugaða hliðstæðu við Entyvio í sprautu eða lyfjapenna

Alvotech (ALVO)AlvotechFDA / regulatory

REYKJAVÍK (31. ágúst 2026) – Alvotech (NASDAQ: ALVO, ALVO SDB) tilkynnti í dag að Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna (FDA) hefði tekið til afgreiðslu umsókn um markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir AVT80, fyrirhugaða hliðstæðu með útskiptileika við Entyivo (vedolizumab) í áfylltri sprautu eða lyfjapenna.

Samkvæmt samstarfssamningi Alvotech og Teva Pharmaceutical Industries Ltd. („Teva“) sér Alvotech um þróun, skráningu markaðsleyfis og framleiðslu AVT80 en Teva um markaðssetningu og sölu í Bandaríkjunum.

„Ákvörðun FDA er mikilvægt skref fyrir Alvotech í þróun á hliðstæðum við vedolizumab,“ sagði Joseph McClellan, framkvæmdastjóri rekstrar hjá Alvotech. „FDA samþykkti í maí sl. að taka til afgreiðslu umsókn um markaðsleyfi fyrir AVT16. Nú er umsóknin fyrir AVT80 komin í sama ferli. Með þessum fyrirhuguðu hliðstæðum getum við boðið upp á sömu lyfjaform og frumlyfið, stofn fyrir innrennslisþykkni í hettuglasi og stungulyf í áfylltri sprautu eða lyfjapenna.“

Entyvio er líftæknilyf ætlað til meðferðar á fullorðnum sjúklingum með miðlungsvirka til mjög virka sáraristilbólgu eða Chrons-sjúkdóm.

Gögnin sem lögð voru inn til umsagnar hjá FDA til að sýna að AVT80 hafi hliðstæða virkni og frumlyfið byggja meðal annars á ítarlegum greiningum sem framkvæmdar eru á rannsóknarstofu auk niðurstaðna úr klínískum rannsóknum á lyfjahvörfum og ónæmingarverkun lyfsins í mannslíkamanum.

Alvotech sækir um að AVT80 verði veitt markaðsleyfi með útskiptileika við frumlyfið. Sérstakar reglur í Bandaríkjunum takmarka heimild lyfsala til þess að afhenda hliðstæðu í stað frumlyfsins án þess að þess sé sérstaklega getið á útgefnum lyfseðli. Útskiptileiki AVT80 myndi heimila lyfsölum að afhenda hliðstæðuna í staðinn fyrir frumlyfið og fjölga þeim valkostum sem stæðu sjúklingum og meðferðaraðilum í Bandaríkjunum til boða.

Í febrúar sl. kynnti Alvotech jákvæða niðurstöðu úr lykilrannsókn á lyfjahvörfum og ónæmingarverkun AVT80. Rannsóknin bar AVT80 saman við frumlyfið og voru allir endapunktar hennar uppfylltir. Gögn úr þessari klínísku rannsókn á AVT80 nægja til að sýna fram á að klínísk virkni beggja fyrirhuguðu hliðstæðnanna við Entyvio, AVT16 og AVT80, sé sambærileg við frumlyfið.

Um AVT16 og AVT80 AVT80 er fyrirhuguð hliðstæða við Entyvio (vedolizumab), sem er einstofna mannamótefni. AVT80 er stungulyf í áfylltri sprautu eða lyfjapenna. Lyfjastofnun Evrópu hefur þegar tekið til umsagnar umsókn um markaðsleyfi á Evrópska efnahagssvæðinu fyrir AVT16 (stofn fyrir innrennslisþykkni í hettuglasi) og AVT80. Lyfin eru enn í þróun og hafa ekki hlotið markaðsleyfi.

Um Entyvio Entyvio (vedolizumab) binst sértækt við viðtaka á alpha-4-beta-7 integrin, sem er viðloðunarsameind sem gegnir veigamiklu hlutverki í ratvísi hvítra blóðkorna þegar þau sækja í vefi meltingarvegarins. Lyfið er ætlað til meðferðar á fullorðnum sjúklingum með miðlungsvirka til mjög virka sáraristilbólgu eða Chrons-sjúkdóm.

Notkun vörumerkja Entyvio er skráð vörumerki Millenium Pharmaceuticals Inc.

Nánari upplýsingar veitir Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið Benedikt Stefánsson, forstöðumaður alvotech.ir@alvotech.com

Um Alvotech Alvotech er líftæknifyrirtæki stofnað af Róberti Wessman sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þróunar- og framleiðsluþættir í höndum fyrirtækisins. Fimm hliðstæður hafa þegar hlotið markaðsleyfi og eru komnar á markað, hliðstæður við Humira (adalimumab), Stelara (ustekinumab), Simponi (golimumab), Eylea (aflibercept) og Prolia/Xgeva (denosumab). Þá vinnur Alvotech meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með krabbamein, sjálfsofnæmis-, augn- og blóðsjúkdóma. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.

Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu Alvotech . Fylgjast má með starfsemi Alvotech á LinkedIn , Facebook , Instagram og YouTube .

Related news

ALVOAlvotech2026-07-29 13:32 EST

Alvotech tilkynnir að Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna (FDA) hefur lokið úttekt sinni á framleiðsluaðstöðu félagsins

ALVOAlvotech2026-08-31 08:30 EST

Alvotech announces FDA acceptance for review of Biologics License Application for AVT80, expanding proposed biosimilar program for Entyvio® to subcutaneous presentations

AMRXAmneal Pharmaceuticals2026-09-18 20:01 EST

Amneal Announces FDA Approval and Launch of Lanreotide Injection

AMRXAmneal Pharmaceuticals2026-07-17 12:00 EST

Amneal Expands Iohexol Injection Portfolio with U.S. FDA Approval of Additional Strengths and Presentations

ANIPANI Pharmaceuticals2026-04-20 10:50 EST

ANI Pharmaceuticals Announces the FDA Approval and Launch of Pimozide Tablets with 180 Day CGT Exclusivity

ANIPANI Pharmaceuticals2026-04-08 10:50 EST

ANI Pharmaceuticals Announces FDA Approval and Launch of Isosorbide Mononitrate Tablet

ADMAADMA Biologics2026-05-04 11:00 EST

ADMA Biologics Announces FDA Approval to Expand the Label for ASCENIV™ to Include Pediatric Immune Compromised Patients Two Years of Age and Older

PHARPharming Group2026-09-11 18:00 EST

FDA approves Pharming’s Joenja® as first treatment for children with APDS in the U.S.

ENTXEntera Bio2026-06-22 12:30 EST

Entera Bio Receives Positive FDA Feedback on 12-Month Registrational Phase 3 Study for EB613 - the First Oral Anabolic Tablet in Development for Postmenopausal Women with Osteoporosis

PHARPharming Group2026-06-04 05:00 EST

Pharming announces U.S. FDA acceptance of sNDA resubmission for Joenja® (leniolisib) to treat children aged 4 to 11 years with APDS

Alvotech

Alvotech is a biosimilars company developing and manufacturing lower-cost alternatives to complex biologic medicines.

Recent company news

Stock data

Close
5.34 USD
Market cap
936.14M USD
Exchange
NASDAQ
Sector
Biopharma
Location
United States