Biotech News

Alvotech tekur þátt í ráðstefnum fyrir fjárfesta í september

Alvotech (ALVO)AlvotechCompany update

REYKJAVÍK (27. ágúst 2026) — Alvotech (NASDAQ: ALVO, ALVO SDB) tekur þátt í tveimur fjárfestaráðstefnum í Bandaríkjunum í næsta mánuði þar sem Róbert Wessman, stofnandi og starfandi stjórnarformaður, og Dr. Balaji V. Prasad, framkvæmdastjóri stefnumótunar, verða fulltrúar félagsins.

Alþjóðleg heilbrigðisráðstefna Morgan Stanley í New York: Fulltrúar Alvotech funda með fjárfestum og sitja fyrir svörum greinanda bankans þriðjudaginn 15. september nk. kl. 16:20.

Heilbrigðisráðstefna Deutsche Bank í New York: Fulltrúar Alvotech funda með fjárfestum fimmtudaginn 17. september nk.

Hægt verður að hlýða á samtalið við greinanda Morgan Stanley í beinu streymi. Upptaka af atburðinum verður einnig aðgengileg á vefsíðu félagsins í 90 daga eftir að ráðstefnunni lýkur. Hlekk á streymið og upptökuna er að finna á heimasíðu Alvotech á síðunni Viðburðir og kynningar , með öðrum viðburðum í þriðja ársfjórðungi 2026 (Q3).

Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið Benedikt Stefánsson, forstöðumaður alvotech.ir@alvotech.com

Um Alvotech Alvotech er líftæknifyrirtæki stofnað af Róberti Wessman sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þróunar- og framleiðsluþættir í höndum fyrirtækisins. Fimm hliðstæður eru þegar á markaði víðsvegar um heim, við Humira (adalimumab), Stelara (ustekinumab), Simponi (golimumab), Eylea (aflibercept) og Prolia/Xgeva (denosumab). Þá vinnur Alvotech meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með krabbamein, sjálfsofnæmis-, augn- og blóðsjúkdóma. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, öðrum Asíuríkjum, Rómönsku Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.

Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu Alvotech . Fylgjast má með starfsemi Alvotech á LinkedIn , Facebook , Instagram og YouTube .

Related news

Alvotech

Alvotech is a biosimilars company developing and manufacturing lower-cost alternatives to complex biologic medicines.

Recent company news

Stock data

Close
5.34 USD
Market cap
936.14M USD
Exchange
NASDAQ
Sector
Biopharma
Location
United States