Biotech News

Alvotech birtir árshlutauppgjör fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2026

Alvotech (ALVO)AlvotechFDA / regulatory

Alvotech birtir í dag uppgjör fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2026 og fjallar um nýlega áfanga í rekstri félagsins.

Ítarlegri útgáfu á ensku er að finna á vefsíðu félagsins fyrir fjárhagsupplýsingar: https://www.alvotech.com/is/financials undir liðnum 2026 Q2, þar má einnig finna árshlutareikning með skýringum og kynningu fyrir uppgjörsfund með stjórnendum félagsins. Fundurinn verður sendur út í beinu streymi og hefst kl. 12, fimmtudaginn 20. ágúst. Skráning á fundinn fer fram hér: https://edge.media-server.com/mmc/p/ppckxq33 .

Helstu niðurstöður árshlutareikningsins (án einskiptiliða 1 )

Aðlagaðar heildartekjur 1 voru 211,9 milljónir dollara, samanborið við 306,1 milljón dollara á sama tímabili í fyrra.

Framlegð af heildartekjum 1 var 54%, lítillega lægri en á sama tímabili í fyrra.

Aðlöguð EBITDA-framlegð 1 nam 46,9 milljónum dollara, samanborið við 53,7 milljónir dollara á sama tímabili í fyrra.

Sjóðsstaða í lok tímabilsins var 142,8 milljónir dollara samanborið við 172,4 milljónir dollara í árslok 2025.

Milljónir dollara – án einskiptiliða 16M 20266M 2025% breyting
Vöru og þjónustutekjur105,9204,7-48,3%
Leyfistekjur og aðrar tekjur105,7101,44,4%
Aðrar tekjur0,20,149,7%
Heildartekjur211,9306,1-30,8%
Framlegð af heildartekjum54%55%
EBITDA-framlegð46,953,7-12,7%

Helstu áfangar á öðrum ársfjórðungi

Alvotech lagði inn að nýju umsóknir um markaðsleyfi hjá Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna (FDA), fyrir AVT05, fyrirhugaða hliðstæðu við Simponi og Simponi Aria og AVT06, fyrirhugaða hliðstæðu við Eylea, eftir að félagið hafði svarað að fullu athugasemdum FDA sem fram komu í svonefndu Post-Application Action Letter (PAAL).

Samstarfsfélag Alvotech, Dr. Reddy’s Laboratories, lagði inn að nýju umsókn um markaðsleyfi fyrir AVT03, fyrirhugaða hliðstæðu við Prolia og Xgeva, sem Alvotech þróaði og framleiðir.

FDA staðfesti að niðurstaða varðandi umsóknirnar um markaðsleyfi ætti að liggja fyrir innan 6 mánaða, á síðasta fjórðungi ársins 2026

FDA staðfesti einnig að úttekt á framleiðsluaðstöðu félagsins í Reykjavík, sem fram fór í apríl og maí sl., væri að fullu lokið og aðstaðan væri flokkuð Voluntary Action Indicated (VAI).

Alvotech lauk hlutafjárútboði í Bandaríkjunum og sölu hlutabréfa til fagfjárfesta og viðurkenndra gagnaðila á Evrópska efnahagssvæðinu (EES). Alvotech hyggst nýta afrakstur af sölu hlutanna, um 165 milljónir dollara, til þess að fjármagna þróun nýrra hliðstæðna, í veltufé og til að standa straum af rekstrarkostnaði. Félagið styrkti lausafjárstöðu sína enn frekar með 75 milljóna dala lánsfjármögnun frá hópi fjárfesta undir forystu GoldenTree Asset Management.

Ummæli Lisu Graver, forstjóra:

„Fyrstu sex mánuði ársins unnum við ötullega að forgangsverkefnum félagsins, þar á meðal umtalsverðum úrbótum á framleiðsluaðstöðu og gæðakerfum. Þessi vinna gerði okkur kleift í júní sl. að leggja inn að nýju umsóknir um markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir AVT05 og AVT06, auk þess sem samstarfsaðili okkar lagði inn að nýju umsókn fyrir AVT03. Þetta var mikilvægur áfangi á þeirri leið að tryggja markaðsleyfi frá FDA á síðasta fjórðungi ársins 2026. FDA staðfesti einnig að reglubundinni cGMP-úttekt á framleiðsluaðstöðunni í Vatnsmýri væri að fullu lokið og aðstaðan væri flokkuð VAI.

„Við náðum einnig góðum árangri í lyfjaþróun. FDA samþykkti nýlega að taka til umfjöllunar umsókn okkar um markaðsleyfi fyrir AVT16, fyrirhugaða hliðstæðu með útskiptileika við líftæknilyfið Entyvio. Þá staðfesti Lyfjastofnun Evrópu (EMA) að teknar hefðu verið til umsagnar markaðsleyfisumsóknir fyrir AVT16 og AVT80. Við teljum okkur vera í kjörstöðu þegar kemur að markaðssetningu þessara nýju hliðstæðna.

„Úrbæturnar í framleiðslunni höfðu umtalsverð áhrif á afköst á fyrri helmingi ársins og drógu úr vöruframboði okkar. Þetta endurspeglast í tekjum og aðlagaðri EBITDA-framlegð á þessu tímabili. Framleiðslan komst aftur á réttan kjöl í lok annars ársfjórðungs. Við erum að byggja upp birgðastöðu til að geta mætt staðfestri eftirspurn. Það mun leiða til betri afkomu þegar líður á síðari helming ársins. Mikilvægt er að undirstrika að eftirspurn eftir okkar lyfjum er mjög mikil, bæði í Bandaríkjunum og Evrópu.

„Við erum nú með fimm hliðstæður á markaði, sem skila umtalsverðum vörutekjum og mikilvægir áfangar í leyfisveitingum eru fram undan. Öflugur stuðningur frá núverandi og nýjum fjárfestum sem fram kom í nýlegu hlutafjárútboði og aðgengi að nýju lánsfé styrkir enn frekar fjárhagsstöðu félagsins og gerir okkur betur kleift að grípa þau miklu tækifæri sem fram undan eru.“

Afkomuspá fyrir árið 2026

Félagið gerir ráð fyrir að heildartekjur ársins 2026 (án einskiptiliða) verði á bilinu 650-700 milljónir dollara og EBITDA-framlegð (án einskiptiliða) á bilinu 180-220 milljónir dollara.

Boð á kynningu á árshlutauppgjörinu

Stjórnendur félagsins kynna uppgjörið á fundi sem sendur verður út í beinu streymi og hefst kl. 12 fimmtudaginn 20. ágúst nk.

Til þess að hlusta á beint streymi af fundinum: https://edge.media-server.com/mmc/p/2qwpypd4

Til þess að hlusta eða leggja fram spurningu úr síma (hverjum þátttakanda er úthlutað PIN): https://register-conf.media-server.com/register/BI179b5ef63d8c4924a2076cb25acf4b15

Kynningarglærur fyrir fundinn og önnur gögn er að finna undir liðnum 2026 Q2 á slóðinni: https://alvotech.com/is/financials

Nánari upplýsingar veita:

Fyrir fjölmiðla – alvotech.media@alvotech.com Benedikt Stefansson Sarah MacLeod

Fyrir fjárfesta - alvotech.ir@alvotech.com Dr. Balaji V Prasad Benedikt Stefansson

Fjárhagsdagatal:

Uppgjör eftir hvern ársfjórðung er birt eins og sjá má í töflunni, eftir lokun markaða í Bandaríkjunum. Uppgjörsfundur fer fram næsta dag. Dagatalið er birt með fyrirvara um mögulegar breytingar.

ÁrsfjórðungurBirting uppgjörsUppgjörsfundur
3F 202611. nóvember 202612. nóvember 2026
4F 202610. mars 202711. mars 2027

Um Alvotech

Alvotech er líftæknifyrirtæki stofnað af Róberti Wessman sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þróunar- og framleiðsluþættir í höndum fyrirtækisins. Alvotech hefur sett fimm hliðstæður á alþjóðlegan markað. Þá vinnur félagið meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með krabbamein, sjálfsofnæmis-, augn- og blóðsjúkdóma. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.

Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu Alvotech https://alvotech.is . Þá má fylgjast með Alvotech á samfélagsmiðlunum LinkedIn, Facebook, Instagram, og YouTube.

1 Tölurnar sýna tekjur, hagnað eða tap tímabilsins að teknu tilliti til einskiptis- og óreglulegra liða. Nánari upplýsingar er að finna á síðunni ‚Reported to Adjusted Reconcilliation‘ í ítarlegri útgáfu tilkynningarinnar á ensku, sem nálgast má á vefsíðu Alvotech https://alvotech.com/is/financials undir liðnum 2026 Q2.

Financial Statements Q2 2023

Related news

ALVOAlvotech2026-07-29 13:32 EST

Alvotech tilkynnir að Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna (FDA) hefur lokið úttekt sinni á framleiðsluaðstöðu félagsins

ALVOAlvotech2026-06-08 08:00 EST

Alvotech announces FDA acceptance of Biologics License Application for AVT16, a proposed interchangeable biosimilar to Entyvio®

ANIPANI Pharmaceuticals2026-04-20 10:50 EST

ANI Pharmaceuticals Announces the FDA Approval and Launch of Pimozide Tablets with 180 Day CGT Exclusivity

AMRXAmneal Pharmaceuticals2026-07-08 20:30 EST

Amneal and Adalvo Announce FDA Acceptance for Review of Two U.S. ANDAs for Generic Tirzepatide Autoinjector

AMRXAmneal Pharmaceuticals2026-07-17 12:00 EST

Amneal Expands Iohexol Injection Portfolio with U.S. FDA Approval of Additional Strengths and Presentations

ENTXEntera Bio2026-06-22 12:30 EST

Entera Bio Receives Positive FDA Feedback on 12-Month Registrational Phase 3 Study for EB613 - the First Oral Anabolic Tablet in Development for Postmenopausal Women with Osteoporosis

PHARPharming Group2026-06-04 05:00 EST

Pharming announces U.S. FDA acceptance of sNDA resubmission for Joenja® (leniolisib) to treat children aged 4 to 11 years with APDS

ADMAADMA Biologics2026-05-04 11:00 EST

ADMA Biologics Announces FDA Approval to Expand the Label for ASCENIV™ to Include Pediatric Immune Compromised Patients Two Years of Age and Older

ANIPANI Pharmaceuticals2026-04-08 10:50 EST

ANI Pharmaceuticals Announces FDA Approval and Launch of Isosorbide Mononitrate Tablet

PHARPharming Group2026-03-24 06:00 EST

Pharming Group announces approval of Joenja® (leniolisib) in Japan for the treatment of APDS in patients aged 4 years and older

Alvotech

Alvotech is a biosimilars company developing and manufacturing lower-cost alternatives to complex biologic medicines.

Recent company news

Stock data

Close
4.43 USD
Market cap
936.14M USD
Exchange
NASDAQ
Sector
Biopharma
Location
United States